Risting_Star_192.99e1f4b1.fill-1920x980-c100.format-jpeg.jpg

ECHO Rising Stars | Maat Sax­o­phone Quar­tet - Blackbird

Austurbakki 2, 101 Reykjavík

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús

9. May 2026

Open from 17:00–18:00

Website: https://www.harpa.is/vidburdir/20438

General Admission: See on official website

Portúgalski Maat saxófónkvartettinn kemur fram á upphafstónleikum ECHO Rising Stars tónleikaröðinni í Hörpu og flytur litríka og fjölbreytta efnisskrá undir heitinu Blackbird sem hverfist í kringum stef á borð við jafnrétti og frelsi. Hér hljóma baráttusöngvar úr smiðjum Ninu Simone, Paul McCartney og George Gershwin og tónlist eftir konur sem ruddu brautina í karllægum heimi.

Kvartettinn flytur efnisskrána utanbókar; tónlistin fléttast saman í eina heild með hugleiðingum eða innskotum úr smiðju Hildegard von Bingen, fluttar á víxl af meðlimum kvartettsins og sönglögum sem Catarina Gomes flytur.

Nýjasta verkið á efnisskránni er eftir hina serbnesk-bandarísku Aleksöndru Vrebalov en hún samdi Four Faces, Four Wings, sérstaklega fyrir Maat-saxófónkvartettinn í tilefni af Rising Stars tónleikaferðalaginu.

Maat saxófónkvartettinn skipa þau Daniel Ferreira á sópransaxófón, Catarina Gomes, sem spilar á altsaxófón og syngur, Pedro Silva á tenórsaxófón og Mafalda Oliveira á barítónsaxófón.

EFNISSKRÁ

Hildegard von Bingen (1098 - 1179)
O Virtus Sapiente (úts. e. Daniel Ferreira)

Lili Boulanger (1893 - 1918)
Nocturne & Cortege (úts. e. Daniel Ferreira)

Henriette Bosmans (1895 - 1952)
Strengjakvartett (úts. e. Adrian Tully)

George Gershwin (1898 - 1937)
Rhapsody in Blue (úts. e. Johan van der Linden)

Paul McCartney (1942)
Blackbird (úts. e. Camiel Jensen

George Gershwin / Nina Simone (1933 - 2003)
Porgy, I is your woman now (úts. e. Camiel Jensen)

Aleksandra Vrebalov (1970)
Four Faces, Four Wings
Samið fyrir Maat saxófónkvartettinn

--

Maat saxófónkvartettinn hefur starfað saman frá árinu 2018 en meðlimir hans stunduðu þá allir nám við Konservatoríuna í Amsterdam hjá Arno Bornkamp. Efnisskrá kvartettsins er víðfeðm og spannar allt frá miðöldum og til samtímans en kvartettinn hefur starfað náið með fjölda tónskálda. Kvartettinn hefur hljóðritað þrjár plötur, Ciudades (2020), Renascer (2023) og No one is too small (2024), sem hafa allar komið út hjá 7 Mountain Records útgáfunni.

Maat saxófónkvartettinn hefur starfað með sviðslistahópum svo sem með dansleikhúsinu AYA að sýningunum Loev (2025) og Wild (2023) og með leikhúsinu Dimantfabriek að óperunni Metamorphosis (2024 - 2025). Maat saxófónkvartettinn hlaut verðlaunin Dutch Classical Talent (Bjartasta vonin í klassísku tónlistarlífi Hollands) árið 2022 og kom í framhaldi af því fram í öllum helstu tónlistarhúsum Hollands. Kvartettinn hefur komið fram á tónleikum víðs vegar í Evrópu, í Brasilíu og í Kína.

Maat-kvartettinn er tilnefndur sem ECHO Rising Star tónlistarhópur árið 2025 - 2026 af tónlistarhúsunum Fundação Calouste Gulbenkian í Lissabon, Casa da Música í Porto og Philharmonie de Paris í París.