Komdu að syngja!
05, október 2024 - 02, nóvember 2024
(sjá dagatal fyrir aðrar dagsetningar)
Opið frá: 13.00 - 13.45
Vefsíða
https://borgarbokasafn.is/vidburdir/fraedsla/komdu-ad-syngja, https://borgarbokasafn.is/vidburdir/fraedsla/komdu-ad-syngja-0
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu
Í haust ætlum við að þenja raddböndin og slá á létta strengi í Spönginni.
Gítarleikarinn og gleðigjafinn Valli leiðir samsöng þar sem helstu perlur íslenskrar dægurlagasögu verða á boðstólnum. Eitthvað gamalt og gott sem flest ættu að þekkja! Bókasafnið er jú ekki bara bækur heldur einnig menningarhús, samkomuhús og félagsheimili.
Það er ekkert að óttast þótt þú kunnir ekki textann, hann verður á skjá svo öll geta sungið með.