Að standa á haus: DJ Rasley
15, nóvember 2024 - 15, desember 2024
(sjá dagatal fyrir aðrar dagsetningar)
Opið frá: 11.00 - 17.00
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu
Rebekka Ashley eða DJ RASLEY er hönnuður og hefur ávallt sótt mikinn innblástur í tónlist og telur tónlist vera sterkasta listformið til þess að gjörbreyta andrúmslofti og skapa stemningu. Hún fékk lánaðar DJ græjur í covid og varð samstundis ástfangin af forminu. Það vatt fljótt upp á sig og hefur hún spilað á fjölmörgum viðburðum, skemmtistöðum og veislum auk þess að hafa hitað upp fyrir ýmsa tónlistarmenn.