Tímans kviða | Píanókvartettinn Negla | Tíbrá

Hamraborg 6, 200 Kópavogur

Dagsetningar
Salurinn
19, september 2024 - 29, september 2024 (sjá dagatal fyrir aðrar dagsetningar)
Opið frá: 12.00 - 17.00

Vefsíða https://salurinn.kopavogur.is/event/timans-kvida/
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu

Hér fléttast saman mögnuð kammerverk frá ólíkum heimum í flutningi píanókvartettsins Neglu en hann skipa fjórar ungar tónlistarkonur í fremstu röð; Sólveig Steinþórsdóttir, fiðla, Anna Elísabet Sigurðardóttir, víóla, Hrafnhildur Marta Guðmundsdóttir, selló og Þóra Kristín Gunnarsdóttir á píanó.

Píanókvartettinn Negla hefur starfað saman í tæp tvo ár og hefur á þeim tíma vakið athygli fyrir metnaðarfulla tónleika og flutning í hæsta gæðaflokki. Eitt af markmiðum kvartettsins er að stefna saman sjaldheyrðum kammerverkum við þekkt stórvirki klassískrar tónlistar líkt og raunin er hér.

Píanókvartett nr. 1 í D-dúr (1875) eftir tékkneska tónskáldið Antonín Dvořák er tvímælalaust þekktasta verk þessara tónleika, verk fullt af unaðslegum laglínum og dramatískum andstæðum þar sem glöggt má heyra hvernig tónskáldið lætur innblásast af þjóðlagatónlist heimalandsins. Enska tónskáldið Frank Bridge samdi Fantasíu fyrir píanókvartett árið 1910, en verkið, sem ólgar af ljóðrænni fegurð og magnþrungnum stefjum, er í sex stuttum þáttum sem saman mynda eina heild.

Dark Rosaleen (2000) eftir bandaríska tónskáldið Lee Hoiby er innblásið af þekktasta ljóð írska skáldsins James Clarence Mangan þar sem Rósalín hin dökka birtist sem táknmynd fyrir heimalandið. Skáldið James Joyce var einn margra til að heillast af ljóði Mangan og samdi meira að segja við það lítinn lagstúf sem Hoiby nýtir sér í tjáningarríkri og litskrúðugri rapsódíu sinni en verkið ber undirtitilinn Rapsódía um stef eftir James Joyce.

Efnisskrá:

Frank Bridge (1879 – 1941)
Fantasía fyrir píanókvartett

Lee Hoiby (1926 – 2011)
Dark Rosaleen (2000)

Antonín Dvořák (1841 – 1904)
Píanókvartett nr. 1 í D-dúr

Á undan tónleikunum verður boðið upp á tónleikaspjall sem hefst klukkan 12:30. Aðgangur á tónleikaspjallið er ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.

Lista- og menningarráð styrkir tónleikaröðina Tíbrá.

Svipaðir viðburðir

Sýning | Enginn getur allt en allir geta eitthvað
Haustfrí | Perlur og Morskóði
Haustfrí | Draugaleg Sögustund
Leiðsögn listamanns | Hendi næst
Umræðuþræðir | Fabrice Hyber: Líkami okkar er landið okkar
Næsta stopp: Varðveisluhús Borgarsögusafns
Opnun: Agnieszka Sosnowska & Ingunn Snædal / RASK
Syngjum saman | Jólasöngstund
Umræðuþræðir - Fabrice Hyber: Líkami okkar er landið okkar
Leiðsögn | Endrum og sinnum
Heimili Heimsmarkmiðanna : Hvernig er jöfnuður?
Núritun Live Coding Space | Leggjum línurnar
Sýningaropnun | Hreinn Friðfinnson: Endrum og sinnum
Leiðsögn listamanns | Hendi næst
Piparkökuarkitektúr – Fjölskyldusmiðja með ÞYKJÓ
Áramótahattar! – Fjölskyldusmiðja með H A G E hattagerðarmeisturum
Ullarkórónur – Fjölskyldusmiðja með Judith Amalíu
Ó!Rói – Aðventusmiðja fyrir fjölskyldur með ÞYKJÓ
Ull
Vík Prjónsdóttir – Ævisaga

#borginokkar