hotelborg_exterior_520x400

Hótel Borg

Pósthússtræti 11, Reykjavík 101, 5511440

Vefsíða: www.keahotels.is

Hótel Borg er glæsilegt hótel staðsett við Pósthússtræti í Reykjavík. Á hótelinu eru 99 herbergi, þar af eru 6 svítur og ein turnsvíta. Herbergin eru öll innréttuð í Art Deco stíl og endurspegla þannig ytra útlit og sögu hótelsins. Bygging var teiknuð árið 1917 af Guðjóni Samúelssyni, fyrrum húsameistara ríkisins, en eftir hann standa margar af þekktustu og fegurstu byggingum landsins. Má þar helst nefna Þjóðleikhúsið, Hallgrímskirkju, Akureyrarkirkju og Hótel Borg. Hótelið er staðsett í hjarta Reykjavíkur en allt í kring má finna fjölbreytt mannlíf, veitingahús og verslanir.

#borginokkar