Oslóartréð

Kveikt verður á Oslóartrénu sunnudaginn 3. desember kl 16:00.

Tendrun jólatrésins á Austurvelli fyrsta sunnudag í aðventu markar upphaf jólaborgarinnar Reykjavíkur en tréð er sótt í norska lundinn í Heiðmörk. Rúm hálf öld er síðan kveikt var á trénu í fyrsta skipti og minnir viðburðurinn á áratuga vinasamband Reykjavíkur og Oslóarborgar.

Jólaórói Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra prýðir jólatréð ár hvert. Í honum sameinast íslenskur menningararfur, hönnun og mikilsvert málefni. Reykjavíkurborg hefur frá upphafi stutt verkefnið en óróar Styrktarfélagsins hafa verið eina skrautið á Oslóartrénu auk jólaljósanna.

Nánari upplýsingar á heimasíðu Reykjavíkur

#borginokkar