Hér & nú: List og vellíðan

Vonarstræti 3, 101 Reykjavík

Dagsetningar
IÐNÓ
05, júní 2024
Opið frá: 16.30 - 17.30

Vefsíða https://www.listahatid.is/vidburdir/her-og-nu-list-og-vellidan
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu

Ókeypis og öll velkomin!
The event takes place in Icelandic.

Happy hour í Klúbbnum þar sem við köfum í möguleika listanna til að stuðla að vellíðan. Opnar umræður, brot úr tónverki Kordu Samfóníu, lyfleysa við meðvirkni í boði Codapent og lög af bataplötu Tilfinningakórsins.
Codapent er verkefni þar sem lyfleysan Codapent býður þátttakendum uppá tillögur að bataferli við meðvirkni. Sýndarmeðferðin kannar hvernig listin getur læknað gömul sár og möguleika lyfleysunnar á að veita skjótan bata. Hrefna Lind Lárusdóttir listrænn stjórnandi mun gefa sýn inn í sköpunarferlið og Tilfinningakórinn ásamt Pétri Eggertssyni kórstjóra flytur nokkur lög af væntanlegri bataplötu.

Korda Samfónía er óhefðbundnasta hljómsveit landsins þar sem saman koma 35 einstaklingar á aldrinum 20-70+ ára á ólíkum stöðum í lífinu. Þar er að finna sprenglært og þaulreynt starfandi tónlistarfólk sem og nemendur úr Listaháskóla Íslands, sjálfmenntað tónlistarfólk og fólk sem aldrei hefur áður lagt stund á tónlist. en einnig fólk sem orðið hefur fyrir áföllum og er mislangt komið í endurhæfingaferli.

Svipaðir viðburðir

Listin talar tungum: Leiðsögn á frönsku
skart:gripur – leiðsögn og sýningarlok
Bókverkamarkaðurinn í Reykjavík
Vorverkin í garðinum
Listamannsspjall: Hlynur Pálma­son│Harm­ljóð um hest
OPNUN: Hlynur Pálma­son│Harm­ljóð um hest
SKART
Málþing um sýningahönnun
ELDBLÓM Hvernig dans varð að vöruhönnun
Í tíma og ótíma
AI \ NI
Orðasmiðja | "eins og"
Leikum og lögum – útsaumsnámskeið með Adriana Torres
Nordic Flamenco "Northern Pulse" - a Helsinki-based international Flamenco group show
Allt sem þú vildir vita um furðusögur en þorðir ekki að spyrja
Leslyndi með Lilju Sigurðardóttur
skart:gripur
Leiðsögn sýningarstjóra: Aðgát
Smiðja | Pödduhótel
Vinur minn ánamaðkurinn

#borginokkar