Dúfur og dirrindí | Sumarsmiðja á sumardaginn fyrsta
25, apríl 2024
Opið frá: 13.00 - 15.00
Vefsíða
https://menning.kopavogur.is/event/dufur-og-dirrindi-sumarsmidja/
Aðgangseyrir Sjá á opinberri vefsíðu
Fögnum saman upphafi sumars í yndislegri dúfusmiðju. Gerum saman litlar og fallegar dúfur úr silkipappír, stenslum, spotta og priki.
Að smiðju lokinni verður hægt að taka dúfuna með sér heim og leyfa henni að flögra um loftin blá.
Smiðjan hefst klukkan 13 og varir til klukkan 15. Á þeim tíma er hægt að koma hvenær sem er og dvelja eins lengi og hentar hverjum og einum.
Öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir og aðgangur er ókeypis.
Smiðjan hentar vel fyrir börn og fjölskyldur.