• Heim
  • Listasafn Sigurjóns Ólafssonar

Listasafn Sigurjóns Ólafssonar

Listasafn Sigurjóns Ólafssonar hýsir höggmyndir og teikningar eftir Sigurjón Ólafsson myndhöggvara ásamt heimildum um listamanninn og er miðstöð rannsókna á list hans. Safnið var stofnað af Birgittu Spur, ekkju listamannsins árið 1984 og var rekið sem sjálfseignarstofnun til ársins 2012, en er nú deild innan Listasafns Íslands.

Auk þess að kynna list Sigurjóns býður safnið upp á sýningar á verkum annarra listamanna og yfir sumartímann eru vikulega haldnir tónleikar sem skipa fastan sess í menningarlífi Reykjavíkurborgar.

Sjá meira

#borginokkar