Jólavættirnir
Jólavættaleikur Reykjavíkurborgar hefst 6. desember og stendur til 19. desember.
14 jólavættir er að finna víðs vegar um borgina. Ratleikurinn er snjallvæddur og auðvelt að nálgast hann á heimasíðu Borgarinnar okkar og Reykjavíkurborgar.
Jólavættaleiknum er ætlað að hvetja borgarbúa og aðra gesti til að njóta miðborgarinnar á aðventunni. Jafnframt er verið að upphefja íslenska sagnahefð og tengja íbúa borgarinnar við gesti hennar í gegnum samtöl og sögur. Gunnar Karlsson myndlistarmaður teiknaði vættirnar sem hafa lífgað upp á miðborgina á aðventunni frá árinu 2011.
Leppalúði, Leiðindaskjóða, Stekkjastaur, Jólakötturinn og fleiri furðuverur verða búnar að koma sér fyrir á húsveggjum víða í miðbænum í desember og úr verður skemmtilegur ratleikur fyrir alla fjölskylduna. Þátttakan felst í því að leita uppi vættirnar og svara laufléttum spurningum.
Dregið verður úr svarseðlum 20. desember og vegleg verðlaun í boði fyrir þrjá heppna þátttakendur sem eru með öll svör rétt.
Farðu inn á jolavaettir.borginokkar.is og kynntu þér málið.
Taktu þátt í skemmtilegum jólaratleik fyrir jólin.
Góða skemmtun!
StekkjarstaurStekkjarstaur er stirður í skapi, stífur í háttum og ákaflega íhaldssamur. Sumir segja að hann stundi jóga á laun, en það hefur aldrei fengist staðfest.
|
GluggagægirGluggagægir er forvitnastur bræðra sinna og er haldinn gægjufikn á háu stigi. Hann hefur margoft verið handtekinn fyrir ósæmilega hegðun - og einu sinnifyrir alþjóðanjósnir, þegar hann gægðist inn á jólaball danska sendiráðsins. |
||
BjúgnakrækirFáir eru jafn hrifnir af unnum, þjóðlegum kjötvörum og Bjúgnakrækir. Hann hefur margsinnis lagt það til, í ræðu og riti, að soðin bjúgu með uppstúf verði gerð að þjóðarrétti Íslendinga. |
SkyrgámurAf jólasveinunum er Skyrgámur duglegastur að klára matinn sinn. Hann er sólginn í hvers kyns mjólkurvörur og þá einkum skyr. Hann hefur dálæti á nýjungum í skyrmenningu, sér í lagi svonefndum skyrdrykkjum. |
||
StúfurStúfur er, eins og margoft hefur komið fram, minnstur jólasveinanna. Hann hefur gert margt til að virka stærri, m.a. gengið á upphækkuðum skóm og ítrekað fengið sér svonefnt afró. |
HurðaskellirHurðaskellir er uppstökkastur bræðra sinna. Hann er óvenju hörund- og tapsár, spéhræddur og móðgunargjarn og á það til að rjúka burt í fússi af minnsta tilefni. Oftar en ekki skellir hann þá á eftir sér hurðum af öllu afli. |
||
JólakötturinnJólakötturinn er óvenju stór af heimilisketti að vera, enda er hann af norskum ættum, eins og flestar íslenskar óvættir. Hann er óumdeilanlega með mikla og góða matarlyst, einkum og sér í lagi á óþægum börnum. |
LeiðindaskjóðaLeiðindaskjóða er litla systir jólasveinanna og er allt annað en leiðinleg. Hún þekkist á gríðastórri skjóðu sem hún dröslar með sér. Hún safnar leiðindum, veseni og amstri sem safnast upp á aðventunni - og fjarlægir það fyrir jólin. |
||
LeppalúðiLeppalúði er seinni eiginmaður Grýlu og er fáeinum öldum yngri en hún. Hann er furðu viðkunnanlegur, af uppgjafa mannætu að vera, en á það til að gleymast heima þegar fjölskyldan heldur til byggða á aðventunni. |
GrýlaGrýla er viðskotaill skessa af virðulegri og ævafornri jöklatröllaætt. Hún hefur óbeit á jólunum og því er það kaldhæðnislegt að allir synir hennar hafa lagt fyrir sig starf jólasveinsins, en ekki orðið læknar eða flugumferðastjórar, eins og hún óskaði sér. |
||
RauðhöfðiRauðhöfði er stór og mikill hvalur með fagurrautt höfuð, sem fyrr á öldum grandaði skipum og lét öllum illum látum úti á rúmsjó. Hann var um árabil vistaður í Hvalvatni - og mátti dúsa þar í refsingarskyni, þar til illhvelishátturinn rann af honum. |
|||
Surtla & SighvaturSurtla og Sighvatur eru tvíburar og yngstu börn Grýlu. Þau eru augasteinar jólasveinanna sem æfa sig allt árið á að gleðja þau og gefa þeim í skóinn. Þau geta því verið ansi heimtufrek og óstýrilát — og eiginlega bara óþolandi, einkum fyrir jólin. En sem betur fer eru þau næstum alltaf sofandi. |
|||
KattarvaliEinn af gömlu sveinunum sem ekki komust |
|||
ÞórálfurÞórálfur er mættur aftur. Hann er afar reglusamur, ráðagóður og vanafastur. Hann á þó til að bregða sér óvænt til byggða á aðventunni og gefa okkur góð ráð.
|
|||