Vatnslitasmiðja: Ljósbrot í hafinu
Þegar að sólin skín á vatnið myndast regnbogi. Í góðu veðri má sjá slíkan regnboga fljóta ofan á hafinu. Ólík öfl mætast og til verður töfrandi augnablik. Í smiðjunni leitum við að álíka birtingum á blaðinu, þar sem vatnið mætir efninu á rökum fleti. Rauður, gulur og blár geta skapað nánast hvað sem er þegar pensill og málning er við hönd. Vorið og hafið veitir okkur innblástur í sköpun okkar og við blöndum einstaka liti út frá grunnlitunum.
Í lok smiðjunnar taka börnin síðan listaverkin með sér heim.
Þátttaka er ókeypis og allur efniviður er á staðnum. Myndlistarkonan Andrea Ágústa Aðalsteinsdóttir sér um smiðjuna. Hún lauk B.A námi í myndlist árið 2015 frá Listaháskóla Íslands. Síðan þá hefur hún tekið þátt í fjölda sýninga á Íslandi sem og víða utan landsteinana. Andrea starfar í dag sem myndlistarkona á sinni eigin vinnustofu og einnig sem kennari við Myndlistarskólann í Reykjavík.