Borgarkortið
Borgarkortið er þægilegasta og hagkvæmasta leiðin til að upplifa borgina okkar.
Borgarkortið veitir frían aðgang að fjölda safna og sundlauga ásamt því að gilda sem aðgangseyrir í strætó innan höfuðborgarsvæðisins. Að auki veitir kortið afslætti í ýmsum verslunum og af þjónustu.
Aðgangur að söfnum er ókeypis fyrir börn undir 18 ára en það er rukkað fyrir 12 ára og eldri í strætó. Einnig er aðgangur ókeypis fyrir börn frá 0-16 ára í sund, en rukkað er fyrir 5 ára og eldri í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn.
Gott er að vita að eldri borgarar (67+) fá frían aðgang að sundlaugum Reykjavíkur og söfnum í eigu borgarinnar. Auk þess býður Listasafn Íslands, Safnahúsið og Þjóðminjasafnið eldri borgurum (67+) 50% afslátt af aðgangseyri.
Hægt að kaupa Borgarkort Reykjavíkur rafrænt hér á heimasíðunni. Einnig er hægt að nálgast kortið á eftirfarandi aðgangsstöðum:
Kaupendur fá afhendingarseðil sendan í tölvupósti og geta svo nálgast Borgarkortið á eftirfarandi stöðum:
- Borgarsögusafn Reykjavíkur – Árbæjarsafn
- Borgarsögusafn Reykjavíkur – Sjóminjasafn
- Borgarsögusafn Reykjavíkur – Ljósmyndasafn
- Borgarsögusafn Reykjavíkur – Landnámssýningin
- Listasafn Reykjavíkur – Ásmundarsafn
- Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús
- Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir
Hægt er að virkja kortið þegar það er sótt eða þú getur beðið um að það sé virkjað á ákveðnum tíma ef þú ætlar þér ekki að nota það strax. Þegar kortið hefur verið virkjað gildir það í 24, 48 eða 72 klukkustundir, eftir því hvernig kort þú valdir.
Borgarkort verð 2023:
Fullorðnir
24 klukkutímar 5.040 kr.
48 klukkutímar 7.000 kr.
72 klukkutímar 8.630 kr.
Borgarkortið veitir aðgang að:
Öllum sundlaugum Reykjavíkur.
Listasafni Íslands
Þjóðminjasafn Ísland
Strætó
Árbæjarsafni
Sjóminjasafninu í Reykjavík
Ljósmyndasafni Reykjavíkur
Landnámssýningunni
Viðey
Fjölskyldu- og húsdýragarðinum
Safnahúsinu
Ásmundarsafni
Hafnarhúsi
Kjarvalsstöðum
Safn Sigurjóns Ólafssonar
Hús Ásgríms Jónssonar
Gerðarsafn
Borgarkortið veitir eftirfarandi afslætti:
Afþreying:
Perlan - 10% afsláttur af Wonders of Iceland og Áróru norðurljósastjörnuverinu
Höfuðstöðin - The Home of Chromo Sapiens - 15% afsláttur
Aurora Reykjavík – 50% afsláttur í The Northern Lights Centre
Bíó Paradís – 25% afsláttur af miðaverði
Harpa – 20% afsláttur af Hringátta sýningu
Harpa - 15% afskáttur af Perlum Íslenskra sönglaga
Sögusafnið – 10% afsláttur af aðgangseyri
Skemmtigarðurinn í Grafarvogi – 2 fyrir 1 í mínigolf frá júní til ágúst
The Cinema, við höfnina – 20% afsláttur af aðgangseyri
Expo skálinn – 20% afsláttur af aðgangseyri
Reðursafnið – 20% afsláttur af aðgangseyri
Sinfóníuhljómsveit Íslands – 10 % afsláttur af miðaverði á vikulega tónleika og opnar æfingar.
Whales of Iceland, hvalasýningin – 30% afsláttur af aðgangseyri
Safn Einars Jónssonar - 20% afsláttur
Veitingastaðir og kaffihús:
Fiskifélagið – 10% afsláttur af matseðli
Geysir Bistro – 10% afsláttur af matseðli
Hannesarholt – 10% afsláttur af matseðli
Höfnin – 15% afsláttur af matseðli
Kopar – 10% afsláttur af matseðli
Lebowski Bar – 10% afsláttur af matseðli, Happy Hour daglega frá 16 - 19
MAR – 15% afsláttur af matseðli
Ning‘s – 10% afsláttur af matseðli
Pho Vietnamese restaurant – 10% afsláttur af matseðli
Restaurant Reykjavík – 10% afsláttur af matseðli
Rossopomodoro – 10% afsláttur af matseðli
Sjávargrillið – 10% afsláttur af matseðli
Verslanir
Handprjónasambandið – Keyptu prjónaða peysu og fáðu fría Varma sokka.
Systur & Makar – 10% af öllum vörum
Ferðir:
Elding Whale Watching – 10% afsláttur af öllum ferðum
Gray Line Iceland – 25% afsláttur af Greater Area Reykjavík Sightseeing tour (AH10)
Íshestar – 15% afsláttur af Lava horse tour kl. 14:00
Reykjavík Bike & Segway Tours – 10% afsláttur af Classic Reykjavik Bike Tour, Reykjavik Segway Tour & hjólaleigu.
Season Tours – 10% afsláttur af Golden Circle Tour
Special Tours Wildlife Adventures – 10% afsláttur af ferðum