
Sumac
Opnunartími:
Þrið - lau: 17.30 - 22.00
Vefsíða: www.sumac.is
Tölvupóstur: sumac@sumac.is
Sumac: djúprauð villt ber sem vaxa víða í Miðausturlöndum og við Miðjarðarhaf – eru síðan sólþurrkuð. Sumac stýrir björtum sítruskeimi sem er ómissandi í matseld Miðausturlanda.
Eldhús: Þráinn Freyr Vigfússon ásamt Tómasi Jóhannssyni hafa hannað hrjúfan og fágaðan matseðil með sterkum innblæstri frá seiðandi stemningu Beirút í Líbanon og tælandi áhrifum frá Norður Afriku.
Matseðill: óspillt ferskt hráefni úr íslenskri náttúru matreitt undir áhrifum Miðausturlanda. Brögð einkennast af eldgrilluðum réttum, fjarrænum og framandi kryddum.
Rýmið: Hönnun Hálfdánar Pedersens endurspeglar upplifunina af opnu eldhúsi, hráum steyptum veggjum, stílhreinum ljósum bekkjum og hlýlegri lýsingu. Opið rými er hannað í kringum langan og aðlagandi bar með rúmri sætaskipan.
Barinn: Þar sem innblástur Miðjarðarhafsins ræður ferðinni með ferskum, fjölbreytilegum og freistandi kokteilum. Sjarmerandi vínseðill skapaðist með blönduðum innblæstri frá Evrópu, Marókko og Líbanon.