14_h6vbwtS

Sléttan félagsstarf

Sléttuvegur 25, Reykjavík 103, 585 3210

Opnunartími:
mán - fös: 9.00 - 16.00

Vefsíða: https://reykjavik.is/slettan

Félags- og tómstundastarfið í Sléttunni er opið öllu fólki óháð aldri. Boðið er upp fjölbreytta dagskrá með fræðslu, skemmtunum og uppákomum af ýmsu tagi. Ekki þarf að sækja sérstaklega um þátttöku, aðeins mæta á staðinn. Ef fyrirhuguð er þátttaka í námskeiðum með fjöldatakmörkunum þá þarf að skrá þátttöku fyrirfram. Í Sléttunni er lögð er áhersla á sjálfsprottið félagsstarf sem hver og einn getur haft áhrif á og mótað. Starfsfólk tekur öllum hugmyndum fagnandi - ekki hika við að hafa samband viljir þú hafa frumkvæði að félags- eða tómstundastarfi á Sléttunni. Markmið félagsstarfsins er að fyrirbyggja og draga úr félagslegri einangrun. Það er vettvangur samfunda, mannlegra samskipta og skapandi athafna. Leitast er við að virkja frumkvæði og hæfileika hvers og eins.

#borginokkar