Skautahöllin í Laugardal
Vefsíða: https://www.skautaholl.is/
Tölvupóstur: skautaholl@skautaholl.is
Íþróttabandalag Reykjavíkur annast rekstur Skautahallarinnar í Laugardal samkvæmt samningi við borgaryfirvöld. Skautahöllin er mikið mannvirki, rúmleag 3.700 fermetrar að stærð, þar af er sjálft svellið 1.800 fermetrar. Skautahöllin tekur allt að 1.000 manns í sæti. Mikil áhersla hefur alla tíð verið lögð á að almenningur hafi greiðan aðgang að höllinni en jafnframt hefur Skautafélag Reykjavíkur sína æfinga og keppnisaðstöði í húsinu.
OPNUNARTÍMAR ALMENNINGS Í VETUR
Við viljum vekja athygli á því að stundum verður rask á opnunartímum vegna mótahalds eða annarra viðburða. Upplýsingar um breyttan opnunartíma verða birtar hér og á facebook síðu hallarinnar.
Skautahöllin í Laugardal er lokuð tímabundið vegna COVID-19 - kórónuveirunnar. Skautahöllin mun opna aftur í september 2020.