reykjavik-lights-outside-03

Reykjavik Lights by Keahotel

Suðurlandsbraut 12, Reykjavík 108, +3545139000

Vefsíða: https://www.keahotels.is/reykjavik-lights

Reykjavik Lights er smekklegt hótel sem er innréttað í stílhreinum skandinavískum stíl. • Staðsett við Laugardalinn • Frítt aðgengi að bílageymslu • Morgunverður innifalinn • Frí nettenging • Björt og falleg herbergi Síbreytileiki ljóss og birtu á Íslandi og hvernig breytileg birtan hefur áhrif á daglegt líf fólksins í landinu er hugmyndin á bakvið concept hönnun hótelsins. Reykjavík Lights er staðsett við Suðurlandsbraut í Reykjavík í göngufæri við miðbæinn, verslanir, veitingahús, söfn og skemmtistaði. Hótelið stendur við jaðar Laugardalsins sem býður uppá fjölbreytta afþreyingu, en þar má meðal annars finna: • Laugardalslaug • Laugardalshöll og Laugardalsvöll • Grasagarðinn • Fjölskyldu- og húsdýragarðinn • Skautahöllina Hótelið er því tilvalið fyrir fjölskyldur og íþróttahópa sem þurfa að sækja viðburði í dalinn eða vilja dvelja miðsvæðis í borginni. Morgunverður er innifalinn Það er ljúft að vakna eftir væran blund og gæða sér á góðum morgunverði áður en haldið er út í daginn. Morgunverðurinn á Reykjavik Lights er innifalinn í dvölinni, frábær viðbót við góðan nætursvefn.

#borginokkar