150840215_3784905128223121_56186538

Nytjamarkaður ABC Barnahjálp

Nýbýlavegur 6, Kópavogur 200, 520-5500

Opnunartími:
mán - fös: 12.00 - 18.00
lau: 12.00 - 16.00

Vefsíða: www.facebook.com/nytjamarkadurinn

Nytjamarkaður ABC barnahjálpar er rekinn til styrktar hjálparstarfinu. Hann er til húsa á Nýbýlavegi 6, 200 Kópavogi. Á Nytjamarkaðinum eru til sölu bæði nýjar og notaðar vörur svo sem föt, heimilistæki, húsgögn og í raun allt á milli himins og jarðar.

Opnunartími Nytjamarkaðarins er milli 12:00 og 18:00 alla virka daga og milli 12:00 og 16:00 á laugardögum.

Nú er tilvalið tækifæri að fara í gegnum geymsluna, bílskúrinn eða fataskápinn og athuga hvort að þar leynist ekki eitthvað sem tilvalið væri að gefa framhaldslíf á Nytjamarkaðinum. Tekið er við gjöfum frá kl. 12:00.

Síminn hjá Nytjamarkaðinum er 520-5500.
Við hvetjum alla til þess að leggja leið sína á Nytjamarkaðinn og kanna hvort þar sé eitthvað sem hugur þess girnist og um leið styðja við og styrkja málefnið.

#borginokkar