Kopavogslaug

Kópavogslaug

Borgarholtsbraut 17, Kópavogur 200, +354 470 0470

Opnunartími:
mán - fös: 6.30 - 22.00
lau - sun: 8.00 - 22.00

Vefsíða: kopavogur.is

Sundlaug Kópavogs hefur verið einn vinsælasti sundstaður landsins síðastliðin ár enda laugin einn stærsti sundstaður landsins. Árið 2008 var stærsti hluti mannvirkisins endurnýjaður. Sundlaugarnar eru þrjár auk rennibrautalaugar. Þær eru 50 m útilaug og 25 m og 10 m innilaugar. Heitir pottar eru alls sjö á svæðinu og þar af nuddpottur og buslupottur fyrir börnin.

Þrjár rennibrautir, sem njóta mikilla vinsælda hjá yngstu kynslóðinni, er að finna á útisvæðinu og reyndar eina enn sem er pínulítil og ætluð þeim allra yngstu. Gott eimbað er á svæðinu, sem mörgum finnst ómissandi.

Heilsuræktarstöð er staðsett í byggingu sundlaugarinnar.

#borginokkar