Hilton_Reykjavik_Nordica

Hilton Reykjavik Nordica

Suðurlandsbraut 2, Reykjavík 108, +354 444-5000

Vefsíða: https://www.icelandhotelcollectionbyberjaya.com/en/hotels/reykjavik/hilton-reykjavik-nordica

Hilton Reykjavík Nordica er eitt glæsilegasta hótel landsins og er hluti af Icelandair Hotels fjölskyldunni. Hilton Reykjavík Nordica leggur mikla áherslu á að vanda til verka og bjóða ætíð fyrsta flokks þjónustu í gistingu, mat og drykk. Hótelið hefur tekið miklum breytingum að undanförnu bæði í alrými og á herbergjum sem miðar að því að auka þægindi og þjónustu við gesti. Umgjörðin er hlý og heimilisleg og ný spennandi rými hafa nú bæst við: VOX Club, VOX Home og VOX Lounge. Staðsetning Hilton Reykjavík Nordica er staðsett í hjarta Reykjavíkur, stutt er í alla þjónustu hvort sem það er í miðborg Reykjavíkur eða í Laugardalinn. Í Laugardalnum má finna afþreyingu fyrir alla fjölskylduna svo sem hina vinsælu Laugardalslaug, Grasagarðinn, Fjölskyldu- og húsdýragarðinn og Skautahöllina. Veitingar VOX Brasserie & bar er glæsilegur veitingastaður þar sem hráefni nýtur sín til fulls og þá sérstaklega það íslenska. Áhersla er lögð á nærtækt hráefni og endurnýjun hefða, en kraumandi metnaður ljær réttunum heimsborgarlegt yfirbragð. Hilton Reykjavik Spa Hilton Reykjavik Spa er fyrsta flokks heilsurækt á Hilton Reykjavík Nordica og býður upp á allt það besta sem völ er á þegar kemur að líkams- og heilsurækt. Andrúmsloftið er rólegt og þægilegt og endurbætt aðstaða og umhverfið hið glæsilegasta. Salurinn er vel útbúinn til góðrar þjálfunar og þar starfa þjálfarar sem allir meðlimir Hilton Reykjavík Spa hafa aðgang að 6 daga vikunnar. Nýir kennarar hafa komið til liðs við okkur og stundataflan er full af spennandi tímum, bæði hópatímum og einkatímum auk þess sem ýmis ný námskeið eru í boði. Þjónustan er persónuleg og er lögð áhersla á að fullnægja þörfum þeirra sem gera kröfu um það besta þegar kemur líkamsrækt og vellíðan. Hilton Reykjavík Spa sér um að dekra við líkama og sál og býður upp á nudd- og snyrtimeðferðir sem henta bæði körlum og konum. Í heilsulindinni eru tveir nuddpottar þar sem boðið er upp á herðanudd, tvær ilmgufur og slökunarlaug. Úti á veröndinni er einnig heitur pottur og gufubað ásamt sólbaðsaðstöðu. Allir gestir fá frían aðgang að Hilton Reykjavík Spa líkamsrækt, en gestir sem gista í Executive rooms og svítum fá einnig frítt í Spaið með inniföldu 5 mínútna herðanuddi í heitu pottunum.

#borginokkar