Helgafell-Horft-til-Valahnuka-og-Hu

Helgafell

Helgafell, Mosfellsbær 270, 5855500

Vefsíða: https://gonguleidir.is/listing/helgafell-hafnarfirdi/

Líklega næstvinsælasta fjallgönguleið höfuðborgarbúa, á eftir Þverfellshorni en afar skemmtilegt fjall. Við leggjum bílnum á stæði rétt ofan við Kaldársel. Gangan er nokkuð þægileg á þann veg að slóðinn er mjög greinilegur allan tímann. Í fyrstu nokkuð sléttur og góður en er á fjallið kemur eykst brattinn eðlilega. Við endum svo í um 340 metra hæð og höldum svo sömu leið til baka.

Helgafell er dæmigerður móbergsstapi sem myndast við gos undir jökli. Á gönguleið okkar sjáum við mörg og fjölbreytt dæmi um ótrúlegar bergmyndanir. Það má ímynda sér að ís, eldur, vindur og aðrir ótrúlegir kraftar hafi hér leikið sér að því að berja bergið til og frá í þessar náttúrumyndir. Yngri kynslóðin getur að minnsta kosti gleymt sér hér við leik og margur eldri einnig.

#borginokkar