126318307_188388819549750_144394510

Bullseye

Snorrabraut 37, Reykjavík 105, 454 6000

Opnunartími:
mán - fös: 16.00 - 22.00
lau - sun: 12.00 - 22.00

Vefsíða: https://www.bullseye.is/

Bullseye er nýr og einstaklega skemmtilegur valkostur í skemmtanalífinu. Staðurinn er einstakur í sinni röð í heiminum, okkur er ekki kunnugt um neinn stað með jafn mörgum spjöldum og fjölbreyttu þjónustuframboði.

Á annarri hæð (gamla Silfurtunglið) erum við með átta píluspjöld (Partýpíla, Keppnispíla) sem hægt er að bóka. Þar er einnig fjöldi borða fyrir gesti og gangandi sem eru óbókanleg.

Á jarðhæðinni eru níu píluspjöld (Partýpíla, Keppnispíla) sem hægt er hægt að bóka, ásamt tveimur hefðbundnum píluspjöldum (óbókanleg) fyrir gesti og gangandi. Þar er einnig fjöldi borða fyrir gesti og gangandi sem eru óbókanleg.

Í Bláa salnum sem opinn er að staðaldri um helgar (fös, lau) og dagana fyrir almenna frídaga erum við með 21 Skemmtipíluspjald sem þarf að bóka.

Athugið að ef til stendur að borða hjá okkur, þá gerum við ráð fyrir að það sé gert á meðan leikið er. Þá er ráðlegt að bóka tvo tíma í pílu, en ekki nauðsynlegt ef um er að ræða minni hópa.

Það er tilvalið að koma til okkar á stefnumót, gæsun/steggjun, með vinahópinn, saumaklúbbinn eða bumbuboltann, afmælisgestina, gömlu skólafélagana eða samstarfsfólkið sem sést svo lítið þessa dagana þegar allir vinna heima! Pílukast er frábært hópefli sem framkallar endalausan hlátur og stemningu. Nýgræðingar ná nokkrum tökum á sportinu eftir fáin köst og gleðin ræður ríkjum allan tímann.

#borginokkar