fff

Black Pearl

Tryggvagata 18, Reykjavík 101, 527 9600

Vefsíða: https://blackpearlreykjavik.com/

Black Pearl er 5 stjörnu lúxus íbúðahótel staðsett í miðbæ Reykjavíkur. Í nálægð við hótelið er að finna hágæða bari og veitingastaði í innan við mínútu göngufjarlægð. Hótelið er aðeins steinsnar frá gömlu höfninni, Hörpunni og Grandanum, þar sem hægt er að nálgast ýmsar verslanir.

Hótelið er fullkomið fyrir rómantískt frí, en einnig ef þú vilt heimsækja Reykjavík með fjölskyldunni þinni.

Hótelið býður upp á 18 rúmgóðar (76 m2 allt að 150 m2), nútímalegar og hreinar svítur með stílhreinum húsgögnum. Sumar þeirra eru með sérinngang með lyftu. Svefnherbergin eru með king-size rúmi, en hægt er að skipta um það fyrir tvö einbreið rúm eftir beiðni (háð framboði). Ef þú kemur á bíl getum við boðið þér bílastæði í bílskúrnum (háð framboði).

#borginokkar