118781367_2660941590827381_26520799

Barion Matbar

Grandagarður 8, Reykjavík 101, 4564040

Opnunartími:
mán - fim: 11.30 - 23.00
fös - lau: 11.30 - 1.00
sun: 11.30 - 23.00

Vefsíða: www.barion.is

Barion er góður hverfisstaður.
Góður hverfisstaður er mikilvægur hverju samfélagi. Staður sem nágrannar og vinir koma saman. Staður þar sem fjölskyldan getur gert sér dagamun án þess að þurfa sækja vatnið yfir lækinn. Staður þar sem hægt er að sjá uppáhaldsliðið sitt með öðrum sem halda með sama liði.
Staður þar sem við ávöxtum gleðina.

Góður veitingastaður er sá staður sem fær viðskiptavini sína aftur í heimsókn. Til að tryggja það þá þarf að hafa metnað í matargerðina og velja hágæða hráefni. Þó að matseðillinn okkar virðist einfaldur þá er hver réttur metnaðarfullur og eingöngu notast við hágæða hráefni.
Við lofum því að standa vörð um gæðin og leggja okkur fram við að gera alla rétti eins og þeir eiga að vera gerðir.

#borginokkar