chdjaph4

Ásvallalaug

Ásvellir 2, Hafnarfjörður 221, 512 4050

Opnunartími:
mán - fim: 6.30 - 22.00
fös: 6.30 - 20.00
lau: 8.00 - 18.00
sun: 8.00 - 17.00

Vefsíða: https://hafnarfjordur.is/sundlaug/asvallalaug/

Ásvallalaug var vígð 6. september 2008 í Vallarhverfi í Hafnarfirði. Sundmiðstöðin er ein sú stærsta á landinu eða um 6.000 m². Þar er einnig Reebok með heilsurækt í 600 m² rými, Ásmegin sjúkraþjálfun svo og félagsaðstaða Sundfélags Hafnarfjarðar og Íþróttafélagsins Fjarðar en þessi félög eru með mjög umfangsmikla starfssemi í lauginni.

Sundmiðstöðin skartar 50 metra sundlaug sem að jafnaði er skipt með brú þannig að helmingur laugarinnar er 25m að lengd og hinn helmingurinn er 50 m. Við 50 m laugina er lyfta fyrir fólk í hjólastólum til að komast ofan í hana. Í sundlauginni er jafnframt 17metra barnalaug (90-110cm djúp) og 10metra vaðlaug fyrir yngstu kynslóðina með tilheyrandi leikföngum. Hitastig barnalauganna er um 32°C á meðan hitastig sundlaugar er 28°C. Hitastig inni í salnum er ávallt um 30°. Innanhúss eru einnig vinsæl vatnsrennibraut, þrír heitir pottar og eimbað. Utandyra eru tveir heitir pottar og mjög góð sólbaðsaðstaða. .

Starfsemin í Ásvallalaug er með fjölbreyttasta móti en þar má nefna auk hefðbundins skólasunds og sundæfinga félaganna, waterpolo, blak, æfingar köfunarfélaga, námskeið í bættum sundstíl, vatnsleikfimi ofl.

#borginokkar