apotek_05

Apótek Hótel

Austurstræti 16, Reykjavík 101, 5129000

Vefsíða: www.keahotels.is

Apótek Hótel er glæsilegt hótel á horni Austurstrætis og Pósthússtrætis. Byggingin var teiknuð árið 1917 af Guðjóni Samúelssyni, fyrrum húsameistara ríkisins, en eftir hann standa margar af þekktustu og fegurstu byggingum landsins. Má þar helst nefna Þjóðleikhúsið, Hallgrímskirkju, Akureyrarkirkju og Hótel Borg.

Hótelið er staðsett í hjarta Reykjavíkur en allt í kring má finna fjölbreytt mannlíf, veitingahús og verslanir. Á hótelinu eru 45 herbergi, þar af eru átta Junior svítur og ein Turnsvíta.

Velkomin á Apótek Hótel.

#borginokkar